Halli Reynis


Go to content

Við erum eins

Útgáfan

1. Velkomin heim
2. Fjörðurinn
3. Við erum eins
4. Frægur og ríkur
5. Perlur fyrir svín
6. Neðsta húsið í götunni
7. Valdimar
8. Húsið
9. Á bak við fjöllin háu
10. Svífa
11. Þú ert frjáls

Lög og textar: Halli Reynis


Halli Reynis: Gítar, söngur, raddir, munnharpa.
Jón Skuggi: Kontrabassi, raddir.
Erik Qvick: Trommur, ásláttur.
Örn Hjálmars: Gítar, raddir.
KK: Slidegítar.

Tekið upp "live" í Hljóðrita Mix í júní 2004.
Upptaka, hljóðblöndun og lokafrágangur: Jón Skuggi..
Útsetningar: Halli og bandið.
Ljósmyndir: Einar Óli Einarsson
Hönnun: Halli, Einar Ólin Einarsson
Útgefandi: Haraldur Reynisson (HRCD004)
Dreifing: Skífan.


Plötudómur Andreu Jónsdóttur á Rás 2 7.okt. 2004:

- ..."öll lögin skemmtileg".....
- .."toppurinn af þeim plötum sem komið hafa
út á árinu"
- "það besta sem Halli hefur gert!"
- "glæsilega spiluð plata"..
- "hljómurinn sérlega góður"....

Morgunblaðið, Grétar M. Hreggviðsson.
Fimm stjörnur!!!!!!

- plata sem á aðeins skilið það besta..
- Halli er í fantagóðu formi á þessari plötu...
- Góðar og einlægar lagasmíðar..
- óaðfinnanlegur hljóðfæraleikur....

Velkomin heim
Lag og texti: Halli Reynis

langur tími er liðinn
leitin er mörgum um megn
hér getur hún verið banvæn biðin
fyrir blásaklausanþjóðfélagsþegn

velkomin heim

ég er með eina tóma tösku
tifandi hjartsláttinn
ég veit þeir finna aldrei þá flösku
sem ég faldi bak við náttfötin

velkomin heim

ég er með óttann innan klæða
það er bara eins og það er
þó er öruggt það verður ekkert að græða
á ódýrum manni eins og mér

velkomin heim

Fjörðurin
Lag og texti: Halli Reynis

hér lék örlagabarnið
við öldurótið
fangaði drauma
við fjörugrjótið
með frelsið og friðinn
múkkann og miðin
sýndi þá tryggð
er tilheyrir byggð

hér var trúað á vonir
hér eru tímarnir breyttir
hér rauk úr húsum
hér voru hjallarnir skreyttir
menn sáðu í svörðinn
um allan fjörðinn
sýndu þá tryggð
er tilheyrir byggð

liðið úti á landi
byggði sér borgir á sandi
sagði heimskur maður og vitnaði í tölur og drög
hann talað'um vonir og arfinn
vísuna og skarfinn
brosti út í bæði og þóttist mælskur mjög

hér eru minnismerkin
ryðguð og rotin
húsin hrunin
bryggjan brotin
jafnvel fuglarnir flúnir
aðeins ristar rúnir
er vitna um tryggð
er tilheyrir byggð

Við erum eins
Lag og texti: Halli Reynis

með hamingjuna í einelti dag og nótt
í brunninn tóman er þó oftast sótt
rétta svarið handan við hornið er
hispurslaus saga af konu sem segir frá sjálfri sér
þetta kostaði milljón kall en það er afsláttur handa þér

það er sagt þú eigir að gera þetta en ekki hitt
ef þú ferð eftir því þú verður alltaf fitt
þeir segja að horaður líkami sé sálarinnar rós
þetta sannast þegar spegillinn gefur hrós
amerísk könnun leiddi það í ljós

ég er lítill
þú ert stór
þú ert feitur
ég er mjór
en að bera okkur saman er ekki til neins
því þegar upp er staðið þá erum við eins

skyndilausnirnar endalaust skríða fram
skjóli þeir vigta hamingju uppá gramm
komdu út úr skápnum skríddu út úr þinni skel
skuggarnir eru að naga þig í hel
það sem skiftir máli er að okkur líði vel

ég er lítill ....

Frægur og ríkur
Lag og texti: Halli Reynis

þú ert breyttur maður
í annari sál
í öðruvísi fötum
talar menntamál

í kauphallarbraski
uppá gróða og tap
og yfirleitt alltaf
í rándýrum félagsskap

þú sem varst yfirleitt illa gyrtur
ert núna innan um bindi og bláar skyrtur
þar sem veröld er rík og snauð
þar sem eins manns dauði er annars brauð

þú er frægur og ríkur
alltaf upptekinn
og þegar þú heldur veislur
þá kemur forsetinn

þú átt heiminn hálfan
það hvílir ábyrgð á þér
þú ert hamingjusamur
og þetta er gott hjá þér


Perlur fyrir svín
Lag og texti: Halli Reynis

nóttin er ung
nóttin er löng
"nojan" hefur valið þetta hús
sporin þung
í þreyttan söng
þögnin á eftir er minn tregablús

ekki segja neinum
ekki einu sinni einum
hvað ég er að fara
þetta er bara skoðun mín
fyrir marsbúa á fróni
með sál í hverjum tóni
er verið að kasta perlum fyrir svín

að langa til að gefa
en geta ekki lengur
þá er andinn tekinn úr flöskustút
með reiðina í hnefa
í gítarnum slitinn strengur
og seinasti tónninn er að deyja út

ekki segja neinum ...

Neðsta húsið í götunni
Lag og texti: Halli Reynis

hver var einatt ráfandi um í myrkrinu eins og naðra
sá fær ekki svar sem ekki spyr
reynsluleysið hefur sá sem horfir á aðra
og dæmir en stendur sjálfur kyrr

úti á veginum eldarnir brunnu
og þeir dönsuðu í kringum þá sem skemmdarverkin unnu

og þannig hafði það verið ár og síð
þögnin er það eina sem ég vil
dagurinn í gær er dæmdur fyrir lífstíð
og dagurinn á morgun ekki til

neðsta húsið í götunni hafði beðið svo lengi
en samt var töff að ganga þangað inn
þar inni sátu englar plokkandi hörpustrengi
þeir kysstu mig og buðu mig velkominn

það glittir í hæð og það er hægt að komast yfir
eymd er valkostur sem þú stendur frammi fyrir

og þannig hafði það verið ár og síð
þögnin er það eina sem ég vil
dagurinn í gær er dæmdur fyrir lífstíð
og dagurinn á morgun ekki til

Valdimar
Lag og texti: Halli Reynis

það var sál þarna inni engri lík
ósnertanlegt heilagt frík
húsið var mörgum stytta og stoð
steig öldur næturinnar sem gúrú eða goð
þeirra sem leið sína lögðu um nótt
í leit að gæfu sinni gátu anda sína sótt
í kúltúrinn sem við sköpuðum og skildum eftir þar
við skrifuðum framtíðinni yndislegar minningar

framan við sviðið kvöld eftir kvöld
kvað við lambhúshettupólitík sem trúði á sín völd
og jarmið þeirra jókst og loksins komst á legg
með litla jesúmynd af jónasi frá hriflu uppá vegg
samtökin dóu við því ekkert er að fást
þessir einstaklingar allir höfðu fundið ást
þetta voru sannir frammarar sem fóru of geyst á
því að gamna sér með byssurnar og ekkert púður í

þarna voru týpur sem ég trúði á
taktlausar sálir með markmið há
og yndislegar mannverur allt í kring
óskiljanlegt framboðsefn'á leiðinni á þing
sem gáfum sínum gaspraði þar
í gegnum hann valdimar

þetta var staður alþýðunnar og mikilmenna
menningarpleis þjóðarkvikindanna
sem komu til að diskútera dagsins mál
og dæma sína eigin þjóðarsál
yfir glasi af rauðu eða ropandi bjór
reyndar gerðist einn og einn af drykkju sljór
menn fengu sínar orður menn fengu sína hnekki
en félagsmálavandræðin við þekktum bara ekki

og bræðurinir með slaufurnar börðust einsog ljón
við að blanda alla drykkina oní sigríði og jón
og alla þá sem einungis komu út af mér
inn á þennan stað til þessa að skemmta sér
við sungum eftir valgeir megas og mig
merkilega söngvana aðeins fyrir þig
sem fjölluðu um lífið lán þess og traust
loforðin sem þú inná staðnum braust

þarna voru týpur ...

Húsið
Lag og texti: Halli Reynis

húsið uppi á hæðinni stendur
hátt ofan við grýttar strendur
þar sem öldur leita að landi
leika sér í grjóti og sandi

hér er skáldið svikult í svefni
svartnættið geymir yrkisefni
aðeins ég þrái að eiga þann grun
að augnablikið sé ímyndun

ég get ekki
get ekki
get ekki
sofið í nótt
því sál minni
sál minni
sál minni
er ekki rótt

að hlusta á vindinn væla og emja
vekja drauga húsið lemja
heyra sterkar stoðir braka
standa á fætur verða að vaka

finna hvernig hjartað hamast
hetjudyggð og kjarkinn lamast
skynja hve nóttin nístandi er
þegar náttúruöflin leika sér

ég get ekki ...

er ég fátækleg fyrirmyndin
feigur maður en hver er syndin
betri maður vera vildi
þó vanrækt ég hafi eigin gildi

ávarpa herrann háum rómi
huglaus andspænis dauðadómi
illskan er "tabu" innan í mér
þótt aldrei ég hafi þjónað þér

Á bak við fjöllin háu
Lag og texti: Halli Reynis

geislarnir tipla um á tánum
taka sér fljótlega frí
í fjúkinu haustlaufin falla af trjánum
það er farið að kólna á ný

rósir springa út á rúðum
rjúpurnar feigar sem fyrr
frost brynjar straum á fljótsins flúðum
fossinn er hljóður og kyrr

og þar biðu augu þín bláu
á bak við fjöllin háu
þar sá ég spor mín speglast þeim í
þar sá ég spor mín speglast þeim í

í dalnum þétt liggur þoka
þessi staður var ætlaður mér
ég ætla að vera hér allt til æviloka
allir draumar mínir rætast hér

Svífa
Lag og texti: Halli Reynis

ég veit ekki hvað gerðist
en augu mín voru bara blind
ég var að klífa
ég var að klífa
nú hefur líf mitt tekið sönsum
og tekið á sig annarskonar mynd
ég fór að svífa
ég fór að svífa

ég fittaði inní hópinn
með þeim sem voru dæmdir úr leik
og voru að klífa
og voru að klífa
ég sá að þetta kapphlaup
var bara komið út af annarskonar reyk
ég vildi svífa
ég vildi svífa

ég var teymdur eins og rakki
og týndi mér við freistinganna gnótt
ég var að klífa
ég var að klífa
í sótsvörtum reyknum
fann ég ritningu þar gat ég bænir mínar sótt
og fengið að svífa
og fengið að svífa

það eru loftkastalar allstaðar
menn hafa látist við það eitt að byggja sér hús
sem voru að klífa
sem voru að klífa
því fyrir utan dyrnar stóðu bankarnir
og dingluðu á hrikalegum blús
með hárbeitta hnífa
með hárbeitta hnífa

Þú ert frjáls
Lag og texti: Halli Reynis

ferð þín er hafin

þú finnur þennan frið
raddirnar segja
ekki líta við

sjáðu eldinn
sem svíður þína slóð
dagarnir líða
í logandi glóð

hjúfrar við þinn háls
það sem áður brást
einnar nætur ást
sem hvíslar þú ert frjáls

handan við hafið
er heimur handa þér
segðu mér sögu þína
og saga þín er

lygin og leyndarmálin
loginn á þinni slóð
óbyggðir örlaganna
og hin brennandi glóð

hjúfrar við þinn háls
það sem áður brást
einnar nætur ást
sem hvíslar þú er frjáls

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu