Halli Reynis


Go to content

Víma alla daga

Textar > Textar

Víma alla daga
Lag og texti: Halli Reynis

Einsog lúmskur köttur hún læðist,
leitandi um nætur.
Höndli hún lífið þá hræðist,
hún hamingju sína og grætur.

Í dagsljósinu draumarnir,
draga hana á tálar.
Bjóð´enni inn um opnar dyr,
eitraðar beittar nálar.

Vindana heyrði hún burtu blása,
bæna sinna gnótt.
Hún öskraði af reiði röddina hása:
Réttu mér hjálp í nótt.

Í sjúklegu ástandi sagði hún mér,
svífandi á skýi.
Nautnin kemur, nojan fer
nær mér þótt ég flýi.

Vindana heyrði hún.........

Með sokkin augu sagði hún mér,
svona er mín saga.
Illar vættir vilja mér,
vímu alla daga.

Vindana heyrði hún.........

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu