Lag og texti: Halli Reynis
með hamingjuna í einelti dag og nótt
í brunninn tóman er þó oftast sótt
rétta svarið handan við hornið er
hispurslaus saga af konu sem segir frá sjálfri sér
þetta kostaði milljón kall en það er afsláttur
handa þér
það er sagt þú eigir að gera
þetta en ekki hitt
ef þú ferð eftir því þú verður
alltaf fitt
þeir segja að horaður líkami sé sálarinnar
rós
þetta sannast þegar spegillinn gefur hrós
amerísk könnun leiddi það í ljós
ég er lítill
þú ert stór
þú ert feitur
ég er mjór
en að bera okkur saman er ekki til neins
því þegar upp er staðið þá erum
við eins
skyndilausnirnar endalaust skríða fram
skjóli þeir vigta hamingju uppá gramm
komdu út úr skápnum skríddu út úr
þinni skel
skuggarnir eru að naga þig í hel
það sem skiftir máli er að okkur líði
vel
ég er lítill ....