Veður
Lag og texti: Halli Reynis
Utan af götu
heyri ég háværann vindinn,
ég held það sé best að kúra í
dag undir teppi.
Kannski ég hlaupi út í sjoppu og leigi spólu,
sjúklegann terror um mann sem strýkur af kleppi.
Spáin er ill og ferlega
fámennt á götum,
ég fíla það illa að geta hvergi farið.
Því ófærð á vegum því
veldur að ég er heima,
ég verð því sættast við blessaða
veðurfarið.
En hver veit nema það
lagist er líður á daginn,
ég leifi mér þó að eiga þann vonarneista.
Því þótt spámenn í sjónvarpi
spái því allra versta,
þá er spám þeirra almennt ekki mikið að
treysta.
Þó er það
ei alslæmt að hafa það rólegt heima,
í huggulegheitum og kúra undir teppi.
Ég hleyp út á leigu og kaupi snakk og spólu,
sjúklegann terror um mann sem strýkur af kleppi.
|