það var sál þarna inni engri
lík
ósnertanlegt heilagt frík
húsið var mörgum stytta og stoð
steig öldur næturinnar sem gúrú eða goð
þeirra sem leið sína lögðu um nótt
í leit að gæfu sinni gátu anda sína sótt
í kúltúrinn sem við sköpuðum og skildum
eftir þar
við skrifuðum framtíðinni yndislegar minningar
framan við sviðið kvöld eftir kvöld
kvað við lambhúshettupólitík sem trúði
á sín völd
og jarmið þeirra jókst og loksins komst á legg
með litla jesúmynd af jónasi frá hriflu uppá
vegg
samtökin dóu við því ekkert er að fást
þessir einstaklingar allir höfðu fundið ást
þetta voru sannir frammarar sem fóru of geyst á
því að gamna sér með byssurnar og ekkert
púður í
þarna voru týpur sem ég trúði
á
taktlausar sálir með markmið há
og yndislegar mannverur allt í kring
óskiljanlegt framboðsefn'á leiðinni á þing
sem gáfum sínum gaspraði þar
í gegnum hann valdimar
þetta var staður alþýðunnar
og mikilmenna
menningarpleis þjóðarkvikindanna
sem komu til að diskútera dagsins mál
og dæma sína eigin þjóðarsál
yfir glasi af rauðu eða ropandi bjór
reyndar gerðist einn og einn af drykkju sljór
menn fengu sínar orður menn fengu sína hnekki
en félagsmálavandræðin við þekktum
bara ekki
og bræðurinir með slaufurnar börðust
einsog ljón
við að blanda alla drykkina oní sigríði og
jón
og alla þá sem einungis komu út af mér
inn á þennan stað til þessa að skemmta sér
við sungum eftir valgeir megas og mig
merkilega söngvana aðeins fyrir þig
sem fjölluðu um lífið lán þess og traust
loforðin sem þú inná staðnum braust
þarna voru týpur ...