Undir
hömrunum háu
Lag og texti: Halli Reynis
Hér hefur
hann búið ævina alla,
og þekkir hverja þúfu, hvern stein.
Sem á leið hans verður er fer hann til fjalla,
sitt fé að sækja heim.
Hann unir sér vel undir
hömrunum háu,
hér hefur hann allt sem þarf.
Fjallakyrrðina og klettana gráu
og kotbóndans draumastarf.
Hann hefur svo margar sögur
að segja,
sögur um vonir og þrár.
Hér er hann fæddur, hér mun hann deyja,
hér mun nafn hans lifa um ókomin ár.
Ég horfi af
kletti á kotbóndann vinna,
í kyrrðinni rækta sín tún.
Þar er lífið sem ég þráði að
finna,
undir þverhnýptri hamrabrún.
|