Þyrnar í krans
Lag og texti: Þorvaldur Flemming

Hve hljótt er í kverkum hins dauðþyrsta manns
lífið er ekki á rósum neinn dans
ef frá eru taldir – þyrnar í krans

Í köstum á kvöldin í kogarann sótt
allt verður gott allt svo þægilegt rótt
verst hversu áhrifin hverfa alltaf fljótt

Pitlan í pokanum skítuga er
örlítill dreitill sem betur fer
titrar og skelfur – fingurinn ber
Hann er þarna einn með sjálfum sér

Það var gott þarna í sumar já hlýjan var góð
sólin svo indæl, svo sæt og rjóð
það er langt síðan hann varð á hennar slóð

Núna er sumarið löngu orðið haust
trén orðin ber og allt hitalaust
til lítils að brýna eina skjálfandi raust

Pitlan í pokanum...