Þúsund
andlit
Lag og texti: Halli Reynis
Athafnamaður
í sinni smiðju,
sækir það sína daglegu iðju.
Vanafastur hjá flestum hver dagur,
fríkað mannlíf og stórborgabragur.
Þúsund andlit
og ég veit ekki hvar ég er.
Þúsund andlit
og ég veit ekki hver ég er.
Geigvænleg mannvirkin
gnæfa upp til skýja,
frá grimmdarleik dagsins nær enginn að flýja.
Allir hafa sín verðmæti að verja,
valdastéttin er alltaf að herja.
Þúsund andlit.........
Á grásvörtu
malbiki mennirnir aka,
í dómhúsi menn eru dregnir til saka.
Fréttir í blöðum sem bjóða þér
hrylling,
blóðugir glæpir og stórborgarspilling.
Þúsund andlit.........
Á þeim svörtu
þrífast ýmsar yfirstéttir,
ekki eru allir á sama plani settir.
Hungrið, baráttan, tilverubaslið,
þeir bágstöddu þrífast innan um draslið.
|