Þjóðarsálin
Lag og texti: Halli Reynis
Ég horfi
út um glugga,
frá umferð heyrist kliður,
regndropar falla,
renna á rúðunni niður.
Fólk á hlaupum.
Eitthvað að gerast hjá öllum.
Ýmist skoða eða kaupa,
eyða sínum þúsundköllum.
Úti á götu
er margt að skoða,
menn og málefni af ýmsu tagi,
sem á einn eða annan hátt tilheyra
þessu hraðvirka, skulduga þjóðfélagi.
Í útvarpi raddir,
spjallandi um vandamálin,
með svör á reiðum höndum
er ávallt þjóðarsálin.
Í leikriti lífsins
er sólskin mikill fengur.
Þó svo í öllum veðrum,
lífið sinn vanagang gengur.
Úti á götu
er margt að skoða,
menn og málefni af ýmsu tagi,
sem á einn eða annan hátt tilheyra
þessu hraðvirka, skulduga þjóðfélagi.
Ég horfi út um
glugga.....
Í útvarpi raddir.....
Úti á
götu er margt að skoða,
menn og málefni af ýmsu tagi,
sem á einn eða annan hátt tilheyra
þessu hraðvirka, skulduga þjóðfélagi.
sem á einn eða annan hátt tilheyra
þessu hraðvirka, litla krúttlega þjóðfélagi.
|