|
Þetta kemur þér ekki við
Lag og texti: Halli Reynis
Það
er sárt þegar sannleikurinn lýgur.
Sögurnar teyma þig á brott.
Um alla borg, fiskisagan flýgur,
fæðir af sér aulaglott.
Það
er vont að vakna upp að morgni,
í veröld sem talar undir rós.
Sálartetrið er einmanna úti í horni,
eins og myrkur sem þráir ljós.
Þetta
kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.
Horfðu
út úr hjarta þínu.
Hugsaðu svolítið skýrt.
Það liggur brotinn maður í blóði sínu,
að benda á hann verður honum dýrt.
Hann var
út í fjarlægðina flæmdur.
Flótti var hans eina svar.
Út úr hópnum dreginn og dæmdur
af dómstólum götunnar.
Þetta
kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.
Það
gerðist sem kjaftasagan kunni.
Það klikkaði ekki sölulega séð.
Myndin var fín á forsíðunni,
fyrirsögnin með.
Það
er vont að vakna upp að morgni,
í veröld sem talar undir rós.
Sálartetrið er einmana úti í horni,
eins og myrkur sem þráir ljós.
Þetta
kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.
|