Halli Reynis


Go to content

Sumarið okkar

Textar > Textar

Sumarið okkar
Lag og texti: Halli Reynis

Manstu daginn, er sumarið kom,
við lékum okkur í sólinni, því ég aldrei gleymi.
Það var dagurinn, er sumarið kom,
ég var hamingjusamasti maður í þessum heimi.

Sumarið okkar--
ég man það enn,
svipinn þinn hreina, augun svo dreymin.
Sumarið okkar--
manstu það enn?
Við lifðum í okkar draumaveröld,
utan við allan heiminn.
Sumarið okkar.

Minningin er eilíft logandi bál,
sem yljar og lýsir upp myrkur á vetrarkvöldum.
Ástin er sterkari en stál,
þótt fjarlægðin sé meiri af einhvers annars völdum.

Sumarið okkar............

Orðin -- svo einlæg og góð,
urðu svo falleg er þau komu af þínum vörum.
Ég sendi þér eitt lítið ljóð
um ástfangið par í leit að lífsins svörum.

Sumarið okkar............

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu