Halli Reynis


Go to content

Stína

Textar > Textar

Stína
Lag og texti: Halli Reynis

Hún vakir allar nætur
hennar veruleiki er grár
Hér festust hennar rætur
þessi grimmu ár
Þegar hjarta hennar grætur
hún aldrei fellir tár.

Hún veitir mönnum hlýju
vekur upp kenndirnar
hittir þá að nýju
léttir þeim stundirnar
Mitt inn í Kristjaníu
við húsarústirnar

Mynd af henni Stínu
að eilífu verður geymd
djúpt í hjarta mínu
svo aldrei fáist gleymd
þar er hún á horni sínu
og öll hennar ást og eymd


Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu