Segðu mér satt
Lag og texti: Halli Reynis

Það geislar af þér og í kringum þig er ávallt þessi himneski friður.
Þú skín líkt og stjarna, nýfallin af himni niður.
Ég ætla að koma og krjúpa við fætur þínar,
er kjarkinn ég finn,
því ég ætla að biðja þig að giftast mér,
ekki á morgun heldur hinn.

Segðu mér satt,
ekkert óþarfa pjatt.
Þú veist hvernig ég er.
Mitt verður þitt,
bæði þetta og hitt,
verður tileinkað þér.
Svo verðum við saman í okkar heimi það sem eftir er.

Sætustu draumarnir, þeir eiga það skilið að rætast.
Það mun neista á milli þegar við látum okkar mætast.
Í návist þinni, þar vil ég vera, þar þarf enginn að þjást.
Það geislar af þér þar sem þú situr á torginu og ég er heltekinn af ást.

Segðu mér satt,
ekkert óþarfa pjatt.
Þú veist hvernig ég er.
Mitt verður þitt,
bæði þetta og hitt,
verður tileinkað þér.
Svo verðum við saman í okkar heimi það sem eftir er.