Rósamál
Lag og texti: Halli Reynis
Ég vil
ekki að aðrir mér línurnar leggi,
líf mitt geri að einhverri stefnu, ég ekki skil.
Sjálfur verð ég að rekast á þá
veggi
sem á veginum efalaust verð af og til.
Blindingjana í draumaheimanna
dregur.
Drottnandi peningamaskína, freistingjanna grimm.
Leiðin að hamingjunni er oft langur vegur
ef leitað er í villustrætin dimm.
Framtíðin er allt
sem ég á.
Ég er ástfanginn að lífinu fullur af þrá.
Ég vil sættirnar sjá.
Ég, stórhuga strákurinn
stend við dyrnar með húslykilinn.
Þori ekki inn - því þar býr sannleikurinn.
Fortíðin er liðin,
brennd á báli
og bænir mínar sem herrann ég sagði þér.
Sannleikurinn er tormeltur, sagður á rósamáli,
en saga mín er eins og flestra hér.
Framtíðin er allt
sem ég á......
|