Regnið lemur
Lag og texti: Halli Reynis og Þorvaldur Flemming

Regnið lemur, lemur og lemur.
Tónana temur, og sögurnar sér.
Söngvana semur, semur og semur,
það kemur og kemur og fer og fer.

"Engin heyrir.
Engin sér.
Ekkert hljóð.
Engin mynd."

Þótt úr skýjunum rigni, rigni og rigni.
Ég signi og signi líka þig.
Þótt sólin skýni, skýni og skýni.
Ég ástinni týni og elska mig.

"Engin heyrir.
Engin sér.
Ekkert hljóð.
Engin mynd."

Við braggann hann stendur, stendur og stendur.
blóðugar hendurnar orna sér.
Víst var hann kendur, meira en kendur.
Hann sem var sendur af mér og þér.

"Engin heyrir.
Engin sér.
Ekkert hljóð.
Engin mynd."