|
|
Öðruvísi
en ég
Lag: Halli Reynis og Guðni Hannesson
Texti:
Halli Reynis
Þú
óttast ekki aðra, þó sértu oftast einn,
svo þunghugsinn í þínum heimi.
Þú talar um heimspeki, guð og margt annað,
fyrir flestu fólki lokuð bók, þér ég
aldrei gleymi.
Þú vilt vita margt,
þú vilt vera fróður,
afskaplega rólegur, saklaus og góður.
Enginn veit meira þótt betur þér ég
lýsi,
inn í hópinn aldrei tekinn, því þú
varst öðruvísi.
Þú kemur til dyranna
einsog þú ert klæddur,
lífinu vilt lifa og aldrei hræddur.
Þú segir líttu í kringum þig allir
eru eins,
að vera öðruvísi en maður er, ekki til neins.
Þú vilt vita margt,
þú vilt vera fróður,
afskaplega rólegur, saklaus og góður.
Enginn veit meira þótt betur þér ég
lýsi,
inn í hópinn aldei tekinn, því þú
varst öðruvísi.
Þú íhugar
svo margt í tilverunni, kannar sérhvern stað,
staldrar stutt við hverju sinni, svo ertu á förum.
Það er svo margt sem hugur þinn leitar að,
eflaust er það ástæðan að þú
ert á hvers manns vörum.
Þú vilt
vita margt.............
|