Halli Reynis


Go to content

Nótt í Reykjavík

Textar > Textar

Nótt í Reykjavík
Lag og texti: Halli Reynis

Ég man þegar ég hitti þig fyrst hérna forðum,
þú varst fegurri en allt, því verður aldrei lýst með orðum.
Okkar tími voru trylltar nætur,
við trúðum á drauma sem aldrei festu rætur.

Við frestuðum öllu í fullkominni sátt,
fórum útí lífið hvort í sína átt.
Oft var það töff, oft var það gaman.
Eflaust var okkur aldrei ætlað að vera saman.

Það er nótt - Það er nótt - Það er nótt,
við þetta þögula torg.
Það er nótt í Reykjavíkurborg.

Vindarnir blása ýmist með eða á móti.
Mannsins örlög ráðast af því róti.
Hverjum manni er ætlaður staður og stund,
stattu þig áður en lokast öll sund.

Ástin er númer eitt yfir lífsins gæði,
þótt öll heimsins skáld segja hana flókna fræði,
í umfjöllunum sínum af ógæfusálum.
Ef ég ætti þig í dag væri ég eflaust í góðum málum.

Það er nótt - Það er nótt - Það er nótt,
við þetta þögula torg.
Það er nótt í Reykjavíkurborg.

Nóttin líður, stjörnurnar stara,
á torginu er fólk að koma og fara.
Allir eru í einhverskonar leik,
á upplýstu götunum, í hamingjuleit.

Hvar ert þú vina í veröldinni stödd,
ég vaki og hlusta til að heyra þína rödd
og til að horfa oní hyldýpi augna þinna.
Hvar sem þú ert, þú er stjarna minna.

Það er nótt - Það er nótt - Það er nótt,
við þetta þögula torg.
Það er nótt í Reykjavíkurborg.

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu