Nema eitt og eitt
Lag og texti: Halli Reynis

Ég horfi á hafið,
háskaslóð.
Inn skríða skipin,
skreytt af aftanglóð.
Nema eitt og eitt
og því fær engin breytt.

Við börnunum blasir,
brosandi framtíðin.
Þau halda útí heimin,
hraust og ákveðin.
Nema eitt og eitt
og því fær engin breytt.

Þú veist um veröldina auma,
varnarlausar hörmungar.
Öll við eigum okkar drauma,
en örlögin, bíða okkar allstaðar.

Ég fer uppá fjallið,
finn þar litla laut.
Leggst og lít á blómin
lífsins yndi og skraut.
Nema eitt og eitt
og því fær engin breytt.

Þú veist..........