Neðsta húsið í götunni
Lag og texti: Halli Reynis

hver var einatt ráfandi um í myrkrinu eins og naðra
sá fær ekki svar sem ekki spyr
reynsluleysið hefur sá sem horfir á aðra
og dæmir en stendur sjálfur kyrr

úti á veginum eldarnir brunnu
og þeir dönsuðu í kringum þá sem skemmdarverkin unnu

og þannig hafði það verið ár og síð
þögnin er það eina sem ég vil
dagurinn í gær er dæmdur fyrir lífstíð
og dagurinn á morgun ekki til

neðsta húsið í götunni hafði beðið svo lengi
en samt var töff að ganga þangað inn
þar inni sátu englar plokkandi hörpustrengi
þeir kysstu mig og buðu mig velkominn

það glittir í hæð og það er hægt að komast yfir
eymd er valkostur sem þú stendur frammi fyrir

og þannig hafði það verið ár og síð
þögnin er það eina sem ég vil
dagurinn í gær er dæmdur fyrir lífstíð
og dagurinn á morgun ekki til