Halli Reynis


Go to content

Miðilsfundurinn

Textar > Textar

Þetta lag er óútgefið en hefur þó verið spilað í útvarpi síðan í jan ´04. Verður sett á disk í framtíðinni.

Miðilsfundurinn
Lag og texti: Halli Reynis

Ég fór til miðils, hann í andann
sem býr í heimi fyrir handan
ég sem var hryggur, var orðin glaður.
Allt annar maður!

Hann féll í trans, talaði tungum.
Sagði sögur af mér ungum.
Hvaðan ég kom, og hvert ég færi.
Hver ég væri.

Svo sagði hann:
"Hér er kona austan af landi.
Hún talaur um svik í hjónabandi".
Ég sagði:
"Heyrðu, þetta er hvorki stund né staður.
Ég er giftur maður."

Og nú fór hann hamförum í stólunum
og sagði: "Konan er komin úr kjólnum".
Birtust mér ljótar myndir.
Gamlar syndir.

Og nú var hætt að vera gaman.
Sá eftir öllu saman.
En var þó forvitinn að heyra,
aðeins meira.

Hann talaði um sál mína,
sagð´ana ríka.
Hann hitti pabba og mömmu líka
og nú var ég málið búinn að missa.
Alveg hissa.

"Mamma þín heitin, hún var þér náin"
Ég sagði: "Heyrðu, hún mamma er ekki dáin"
Þá leit hann snöggt í allar áttir
og sagði: "Erum við sáttir?".

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu