Lífið er ást
Lag og texti: Þorvaldur Flemming

Mér leiðist seint að vera í leik
Að lyfta sjálfum mér á kreik
Að gjóa augum til þín gamalgróna eik
ganga um bæinn minn er kenndur er við reyk

En nú er hamingja mín sú
á vegi mínum verður þú
Ég kýs að kröftum mínum varið verði nú
að fá á lífi mínu óbilandi trú

Af því að lífið - það er ást
og ég elska það
sem að kemur frá þér
Af því að það mun alltaf sjást
brotið er nú blað
ég er skotinn í þér

Ég man er mæðu þunga bar
Já mögnuð barátta það var
Hún magnar lífsreynslu og ekkert ber ég mar
Við flestum spurningunum fékk ég þetta svar

Af því að lífið - það er ást
og ég elska það
sem að kemur frá þér
Af því að það mun alltaf sjást
brotið er nú blað
ég er skotinn í þér

Á brautu minni berast ljóð
Samt þá eru þau oft hljóð
Er sólin situr þarna í kinnum sínum rjóð
og lýsir sálu mína á hamingjunnar slóð