Halli Reynis


Go to content

Lestin brunar

Textar > Textar

Lestin brunar
Lag: Halli Reynis
Ljóð: Jón Helgason

Lesin brunar, hraðar, hraðar,
húmið ljósrák sker,
bráðum ert þú einhvers staðar
óralangt frá mér.

Út í heim þú ferð að finna
frama nýjan þar,
ég hverf inn til anna minna,
allt er líkt og var.

Þú átt blóðsins heita hraða,
hugarleiftur kvik;
auðlegð mín er útskersblaða
aldagamalt ryk.

Enhvers skírra, einhvers blárra
æksti hugur minn,
og þú dreyfðir daga grárra
deyfð og þunga um sinn.

En nú liggja leiðir sundur,
ljósin blika köld,
aldrei verður okkar fundur
eftir þetta kvöld.

Gegnum haustsins húmið þétta
hug minn víða ber,
aldrei munt þú af því frétta
að hann fylgir þér.

Aldrei spyrðu alla daga
að í kvöld ég hef
ort á tungu ystu skaga
einstök fábreytt stef.

Þegar brátt þín mynd og minning
máist föl og hljóð,
er til mark um okkar kynning
aðeins þetta ljóð.

Allar reddir óma glaðar,
einn ég raula mér;
lestin brunar, hraðar, hraðar,
húmið ljósrák sker.

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu