Halli Reynis


Go to content

Leiðin er löng

Útgáfan

1. Leiðin er löng
2. Aldrei einn
3. Þetta kemur þér ekki við
4. Fyrir þig
5. Góður tími
6. Myrkrahöfðinginn
7. Café Køben
8. Engillinn í snjónum
9. Söngur Galeiðuþræla*
10. Ástin er einföld
11. Lag fyrir Sölva

Lög og textar: Halli Reynis
nema * Lag: Halli Reynis
Ljóð: Davíð Sefánsson frá Fagraskógi,


Halli: Gítar, söngur, munnharpa.


Upptökur fóru fram í jan/feb 2006 í Studio Mix
Upptaka, hljóðblöndun og lokafrágangur: Jón Skuggi
Skissur: Halli
Ljósmynd: Einar Óli Einarsson
Hönnun, útlit: Einar Óli Einarsson
Útgefandi: Haraldur Reynisson (HRCD005)
Dreifing: Músik ehf


Leiðin er löng
Lag og texti: Halli Reynis

Mamma var vön að segja,
“Lánið er valt”.
“Ekki príla of nálægt guði drengur,
þar gæti orðið kalt”.
Leiðin er löng,
strembin og ströng,
en hann er yndislegur dagurinn í dag.

Ég fór í skóla eins og aðrir,
fékk vinnu og skatt.
Hamaðist við að príla
og öðru hvoru datt.
Leiðin er löng,
strembin og ströng,
en hann er yndislegur dagurinn í dag.

Mamma sagði sögur
og raulaði lag.
“Öll bestu árin sín var hann pabbi þinn,
fullur upp á dag!”.
Leiðin er löng,
strembin og ströng,
en hann er yndislegur dagurinn í dag.

Og nú sit ég gamall maður
og gæfusporin tel
og minnist orða mömmu,
sem ég skil nú fyrst svo vel.
Leiðin er löng,
strembin og ströng,
en hann er yndislegur dagurinn í dag.


Aldrei einn
Lag og texti: Halli Reynis

Leiksvið okkar er eins og lúmska hafið
og líf manns eins og bátur þar úti á .
Þó er einhver annar sem stendur við stýrið
og stjörnurnar vita hver mun landi ná.

Út á hafið hetjurnar fóru,
svo heyrði ég í morgun þessi orð.
“Það var mannskætt veður á miðunum í nótt
og maður fyrir borð”.

Aldrei einn
Aldrei einn
Hann var sendur til að gæta okkar hinna.
Aldrei einn
Aldrei einn
Nú situr hann við háborð feðra sinna.

Hann er hjá mér hvert sem leiðin liggur.
Líf hans verður ljósið mitt um stund.
Þessvegna er engin ástæða að vera hryggur,
því við eigum eftir að eiga okkar fund.

Aldrei einn
Aldrei einn
Hann var sendur til að gæta okkar hinna.
Aldrei einn
Aldrei einn
Nú situr hann við háborð feðra sinna.


Þetta kemur þér ekki við
Lag og texti: Halli Reynis

Það er sárt þegar sannleikurinn lýgur.
Sögurnar teyma þig á brott.
Um alla borg, fiskisagan flýgur,
fæðir af sér aulaglott.

Það er vont að vakna upp að morgni,
í veröld sem talar undir rós.
Sálartetrið er einmanna úti í horni,
eins og myrkur sem þráir ljós.

Þetta kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.

Horfðu út úr hjarta þínu.
Hugsaðu svolítið skýrt.
Það liggur brotinn maður í blóði sínu,
að benda á hann verður honum dýrt.

Hann var út í fjarlægðina flæmdur.
Flótti var hans eina svar.
Út úr hópnum dreginn og dæmdur
af dómstólum götunnar.

Þetta kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.

Það gerðist sem kjaftasagan kunni.
Það klikkaði ekki sölulega séð.
Myndin var fín á forsíðunni,
fyrirsögnin með.

Það er vont að vakna upp að morgni,
í veröld sem talar undir rós.
Sálartetrið er einmana úti í horni,
eins og myrkur sem þráir ljós.

Þetta kemur þér ekki við.
Þessi frétt þoldi enga bið.
Þetta kemur,
þetta kemur,
þetta kemur þér ekki við.

Fyrir þig
Lag og texti: Halli Reynis
mig langar að segja svo margt
sem myndi nýtast þér í dag
og að við gætum farið út í buskann með gítar
og þar gæti ég sungið lag

fyrir þig fyrir þig fyrir þig fyrir þig
fyrir þig fyrir þig fyrir þig fyrir þig

mig langar að gefa svo margt
horfa á lífið með þér og að því dást
segja orðin sem ég vona að þú viljir heyra
gefa af mér kærleika og ást
fyrir þig...

mig langar að syngja þér söng
áður en dagurinn í burtu fer
það fjallar um okkur og ævintýrið
sem ég geymi í huga mér
fyrir þig...


Góður tími
Lag og texti: Halli Reynis

Manstu eftir árunum sem enginn gat breytt.
Það eina sem við vildum var allt eða ekki neitt.
Núið var ekki til og það sem einu sinni var,
svo við einblíndum á veginn til framtíðar.

Það var allt í boði samt eitthvað svo fátt.
Alls staðar var opið í hálfa gátt.
Tíminn var hægur sem tifandi gekk,
fyrir takmarkið að komast af skólabekk

Þessi tími var góður.

Á þessum róttæka tíma ég reyndi að klífa hvern ókleyfan vegg,
röddin var dýpri og mér fór að vaxa skegg.
Allt sem átti að gerast varð að vera inn
þar erfitt að vera næstum því, en ekki alveg fullorðinn.

Fyrstu kynni mín af kynlífi, það var í stigagangi í blokk,
er hún kvaddi mig, gaf hún mér ljósan lokk,
úr hári sínu þessi stelpa sem var orðuð við marga menn.
Ég man ekki hvað hún heitir, en lokkinn á ég enn.

Þessi tími var góður.

Þessi tími var góður, þó gerðist einstaka slys,
við gerðum tilraunir með áfengi og kannabis.
Við gamalt skotbyrgi uppí Öskjuhlíð, það var fátítt að finnast þar
og flugum burtu með vængjaslætti vímunnar.

Við eltum uppi nautnirnar og nóttin var löng.
Við nærðumst á spennu því sálin var svöng
og í glasinu var andi sem eitthvað vit var í,
veraldlegar uppgötvanir, augnabliks frí.

Þessi tími var góður.

Við stunduðum rúntinn um helgar, reyndum að vera töff,
réðumst að norminu sem var aðeins blöff.
Í “agrissívum” textum, tónlistar sem var,
tískunnar og þjóðfélagsins eina svar.

Við vorum að leita og leituðum um allt.
Lofuðum lífið sem var fyrir augnablikið falt.
Er ég horfi á þig núna sé ég þjóðnýtan þegn
en því miður voru ekki allir sem sluppu í gegn.

Þessi tímir var góður


Myrkrahöfðinginn
Lag og texti: Halli Reynis

Er hann fæddist, voru veður blíð,
líkt og varkár hugur hans sýndist alla tíð.
Hann ólst upp í firði undir fjallshlíð,
þar sem hann mótaðist og lífsþróttinn fann.
Fátæktinni kynntist hann ungur,
það ortu um það mælskar tungur.
Tilverubasl, harðindi og hungur,
hert´ann upp og breytt´onum í mann.

Að hafinu hugur hans sótti,
hugaður með afbrigðum þótti.
Þótt öldurnar trylltust þá var aldrei ótti,
ekkert honum haggaði í neyð.
Hann kunni best við sig í veri.
Varðist öldum er út hann réri,
en þegar aftur heim hann snéri,
var enginn á bakkanum sem beið.

Menn sögðu “ Hann er nægur sér sjálfur”,
aðrir “Nú er hann fullur eða hálfur”,
en hvað sem hann var, þá hvarf hann eins og álfur,
inn í sinn ósýnilega hól.
En hvað hann var að dunda sér að gera,
menn létu hann almennt vera,
sína hamingju og óhamingju bera.
Hann hlyti að eiga einhversstaðar ból.

Af krafti sótti hann hvern róður,
verk sín vann dulur og hljóður,
en þegar hann opnaði munninn var hann sagnasjóður,
um mannskepnuna og almættið.
Oft sagð’ann, “allt er gott á meðan flýtur”
“undir fótum mínum hyldýpið bítur.”
Hann var harður eins og klettur sem ölduna brýtur
það var öryggi að haf’ann sér við hlið.

Við fæðingu styrkinn fékk’ann
sem færði honum lífsbjörg, því oft var erfið brekkan,
en þegar hann fannst látinn, þá var það heima og í snöru hékk´ann
og afhjúpaði þar með sannleikann.
Fyrst veðravítin aldrei náðu að hrepp´ann
eða hafið oní gröf sína að hnepp´ann
þá var það einhver sjúkleg sálarkreppan
sem beygði þennan stóra og sterka mann.

Það er sama hver er þinn styrkur,
hversu duglegur þú ert og virkur
að þegar Bakkus heimsækir þig þá verður þú klæddur inn í myrkur
og þú missir allan takt.
Í lífi hans var eflaust komin mugga
og engin heima til að hugga
því smátt og smátt hafði verið neglt fyrir hans sálarglugga
og þar var Myrkrahöfðinginn á vakt.



Café Køben
Lag og texti: Halli Reynis

Kaffihúsið kúrir svo hljótt.
Kvöldið færir gestunum frið.
Er koma inn og kasta af sér klæðum
og kafa oní mannlífið.

Hér eru heimsmálin af hugviti rædd.
Hafin upp af draumleitandi sálum.
Er losa af sér ósýnileg höftin,
á allra þjóða tungumálum.

Það snjóar úti og það er notalegt að ylja sér.
Hefur þú segðu mér,
komið inn á Café Køben?

Hingað kemur skáldið og skrifar ljóð
og skáldahugurinn verður eins og djúpur hylur.
Að lokum fer með lítinn óð,
ljóð sem enginn maður skilur.

Hingað koma fínar frúr og brosa.
Á flótta undan þotuliðsveröldinni.
Heitum ástum drekkja í heimskum vínum
og halda uppá falin kynni.

Það snjóar úti og það er notalegt að ylja sér.
Hefur þú segðu mér,
komið inn á Café Køben?


Engillinn í snjónum
Lag og texti: Halli Reynis

Mér finnst gaman að liggja í snjónum með þér,
horfa upp í himininn, þar sem tunglið er.
Tala um draumana, halda í þá fast,
sjá stjörnurnar smátt og smátt margfaldast.

Engillinn í snjónum hefur vængi.
Englar eru í alvörunni til.
Þeir vaka á meðan ég sef.
Þeir koma þegar ég vil.

Gerðu engil í snjónum og skemmtu þér.
Leyfðu barninu innra með þér að leika sér.
Veldu þér stjörnu og stjarnan verður þín
og engillinn flýgur með þér um heimkynni sín.

Engillinn í snjónum hefur vængi.
Englar eru í alvörunni til.
Þeir vaka á meðan ég sef.
Þeir koma þegar ég vil.



Söngur galeiðuþræla
Lag: Halli Reynis

Ljóð: Davíð Stefánsson frá Fargraskógi.
Við hefjum um niðdimmar nætur
hinn nístandi galeiðusöng
og þrælkum með fjötraða fætur
og fánann dreginn að stöng.
Það brakar í böndum og töglum,
og brjóst okkar foringinn slær,
uns blóðið brýst undan nöglum,
og dauðinn í djúpinu hlær.

Heyr kvein þeirra, er gæfunni glata
og gátu ekki flúið þann dóm
að verja það vald, sem þeir hata,
og visna í laganna klóm.
Heill þeim, sem helstafi yrkja
um harðstjórans ríki og völd.
Vei, vei þér, kóngur og kirkja
og gráa, guðlausa öld.

Með níðingum skulu þeir nefndir,
sem neituðu okkur um grið,
og blóð okkar boðar þeim hefndir
og bölvun í sjöunda lið.
Við bíðum á brimsorfnum fjölum
sem brennimerkt, lifandi hræ.
Við hljóðum af helvítis kvölum,
uns galeiðan sekkur í sæ.


Ástin er einföld
Lag og texti: Halli Reynis

Ástin er einföld
en flókin í senn
fer illa með konur
og illa með menn

er saklaus að öllu
kenna sér um
allt sem gerist
í örlögunum.

ég þrái þig alla
þitt brosmilda geð
holdið og andann
og sálina með

ósvikin loforð
við sannleikans borð
altariskossinn
og hin ósögðu orð.



11. Lag fyrir Sölva

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu