|
Leiðin er löng
Lag og texti: Halli Reynis
Mamma
var vön að segja,
“Lánið er valt”.
“Ekki príla of nálægt guði drengur,
þar gæti orðið kalt”.
Leiðin er löng,
strembin og ströng,
en hann er yndislegur dagurinn í dag.
Ég
fór í skóla eins og aðrir,
fékk vinnu og skatt.
Hamaðist við að príla
og öðru hvoru datt.
Leiðin er löng,
strembin og ströng,
en hann er yndislegur dagurinn í dag.
Mamma sagði
sögur
og raulaði lag.
“Öll bestu árin sín var hann pabbi þinn,
fullur upp á dag!”.
Leiðin er löng,
strembin og ströng,
en hann er yndislegur dagurinn í dag.
Og nú
sit ég gamall maður
og gæfusporin tel
og minnist orða mömmu,
sem ég skil nú fyrst svo vel.
Leiðin er löng,
strembin og ströng,
en hann er yndislegur dagurinn í dag.
|