Halli Reynis


Go to content

Komdu til mín

Textar > Textar

Komdu til mín
Lag: Þorvaldur Flemming
Texti: Halli Reynis

Þú undur fagra vera
sem vakir við myrkrið hljótt.
Þú nærir mína drauma
næstum hverja nótt.

Mynd af þér ég geymi,
djúpt í hjarta mér.
Því ég hef lengi verið,
ástfanginn af þér.

Ég óska þess þú verðir,
í lífi mínu stödd.
snerta heitar varir þínar
og heyra þína rödd
Hvísla
komdu, komdu til mín.

Ég svíf í hæstu hæðum
er hugsa ég um þig.
en kjarkleyisið og feimnin,
er að kæfa mig.

Ég ætla mér að koma,
er kraftanna ég finn.
Ég hugsa að það verði,
á morgun eða hinn.

Ég óska þess þú verðir,
í lífi mínu stödd.
snerta heitar varir þínar
og heyra þína rödd
Hvísla
komdu, komdu til mín.

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu