Textar > Textar
Komdu kona mín
Lag: Halli Reynis
Texti: Þorvaldur Flemming
Komdu kona mín
Í kjöltu mína legstu nú
Hlustaðu á sögurnar sem sagðar hafa verið
Sama gamla tuggan, sama lygakverið
Um það hvernig allt, sem öllu máli skiptir ert þú
Komdu kona mín
Kannaðu mín innstu rök
Leiddur mig þær leiðir sem aldrei hef ég farið
Ljáðu mér þitt eyra og taktu svo af skarið
Um það hvernig bakkus á sálu minni hefur tök
Komdu kona mín
Krjúptu hérna mér við hlið
Bíddu eftir því að bænirnar ég heyri
Betra verður allt bara ef þær verða fleiri
Guð og góðir menn standa saman að bræðra sið
Ég man enn þá eftir því er sálir okkar sóru
sambandi og tryggð, hjá altarinu stóru
Með loforða flóruna, á vörum mínum er
ástfanginn - sem betur fer...
Komdu kona mín
Kannastu við þennan mann
Hann átti í þér beinin öll sem liðu gegnum árin
Og eyðilagði allt saman í gegnum ýrafárin
Eftir stendur einsemdin og ílla farin samviskan