Halli Reynis


Go to content

Klara

Textar > Textar

Klara
Lag og texti: Halli Reynis

Á þig starir hver einasti strákur,
þú ert stjarna, heilög, fullkomnuð.
Þeir sækja að þér einsog soltnar krákur
og sverja við sinn almáttuga guð.
-- Í návist þinna votu vara,
verði framtíðin ætluð þér.
Klara Klara -- ætluð þér.

Ég hef reynt hvað ég get og get ekki meira,
en ég geri það sem í brjósti mínu býr.
Ástin er einsog váleg veira,
sem vekur upp þrjóskunnar óargadýr.
-- Ef ég aðeins feng´að fara,
í faðminn þinn í nótt.
Klara Klara
í faðminn þinn í nótt.

Þú ættir því stúlkan mín gullið að grípa,
ég gef þér dýrðina einsog hún er.
Því innst inni er ég þín draumatýpa,
hver einsti maður það augljóslega sér.
-- Ef ég aðeins feng´að fara,
í faðminn þinn í nótt.
Klara Klara
í faðminn þinn í nótt.

-- Í návist þinna votu vara,
að veði ég líf mitt læt.
Klara Klara
því þú ert svo sæt.

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu