Þetta lag kom út á
safndiski 1991 sem heitir Lagasafnið 2.

Jólasveinar á þingi
Lag og texti: Halli Reynis

Ráðherrann er reyndur maður,
reiður stundum, stundum glaður,
skiptir skapi einsog venja er.
Sumum finnst hann voða fyndinn,
þótt fjúki flest hans orð í vindinn,
er þau berast að eyrum mér.

Yfir honum er stöðugt stíllinn,
stöðutáknið - ráðherrabíllinn,
afrek unnið hefur hér og þar.
Ráðhús fyrir reykvíkinga,
resturant fyrir auðkyfinga,
svo reikna menn og reikna skuldirnar.

Fyrir þá sem hann er á þingi,
er hann þjónn svo hreinn og beinn.
En í mínum augum sem Íslendings
er hann aðeins jólasveinn.

Eflaust af æðri máttarvöldum,
er honum stjórnað á heitum tunglskinskvöldum,
eitthvað sem enginn skilið fær.
Eða er hann huldumaður úr einhverjum hólnum,
sem hallar sér brosandi í ráðherrastólnum,
því heillastjarna hetjunnar er skær.

Fyrir þá sem hann er á þingi,
er hann þjónn svo hreinn og beinn.
En í mínum augum sem Íslendings
er hann aðeins jólasveinn.