Í fjólubláum ljósum
Lag og texti: Halli Reynis

Mannþröngin á götunni er söguleg að sjá
til sýnis eru vörurnar í gluggum.
Sumir eiga erindi, aðrir horfa á
upplifa sín drauma í dimmum skuggum.

Hér er hægt að uppifa allt fyrir peninginn,
allt það sem í daumum þínum lifir.
Þú greiðir fyrir þjónustuna, gengur síðan inn
og gluggatjöldin dregin eru fyrir.

Í fjólubláum ljósum þær biðu eftir mér.

Rökkrið í götunni geymir,
gráðuga hugsjónum um auðfenginn gróða.
Því það sem karlmann í draumi sínum dreymir,
hafa drottningar götunnar allt að bjóða.

Farir þú er rökkva tekur færðu allt að sjá,
er fannst þér áður í huga þínum órar,
að kvenfólkið sem á þig horfir allar vilja fá.
Ungar, gamlar, svartar, litlar og stórar.

Í fjólubláum ljósum þær biðu eftir mér.