Hvítir fuglar
Lag: Halli Reynis
Ljóð: Davíð Stefánsson

Ó, hvítu fuglar, fljúið héðan brott,
þið fáið enga hvíld við þessar strendur.
Hér eru vopn og veiðimanna hendur
og vígtennt dýr með klær og loðið skott.

Það verður aldrei friðland neitt að fá
hjá fólki því, er sönginn einskis metur,
og vígamönnum veitist alltaf betur,
og vængjaþytur ykkar tryllir þá.

Hér brestur ykkur bæði skjól og vörn.
En bak við fjallið sá ég skógarrunna
á eyðihólma úti í heiðatjörn.

Þar opnar hvelið sína bláu brunna
og blessar þeirra líf, er söngnum unna.
Ó, leitið þangað, loftsins hvítu börn.