Halli Reynis


Go to content

Húsið

Textar > Textar

Húsið
Lag og texti: Halli Reynis

húsið uppi á hæðinni stendur
hátt ofan við grýttar strendur
þar sem öldur leita að landi
leika sér í grjóti og sandi

hér er skáldið svikult í svefni
svartnættið geymir yrkisefni
aðeins ég þrái að eiga þann grun
að augnablikið sé ímyndun

ég get ekki
get ekki
get ekki
sofið í nótt
því sál minni
sál minni
sál minni
er ekki rótt

að hlusta á vindinn væla og emja
vekja drauga húsið lemja
heyra sterkar stoðir braka
standa á fætur verða að vaka

finna hvernig hjartað hamast
hetjudyggð og kjarkinn lamast
skynja hve nóttin nístandi er
þegar náttúruöflin leika sér

ég get ekki ...

er ég fátækleg fyrirmyndin
feigur maður en hver er syndin
betri maður vera vildi
þó vanrækt ég hafi eigin gildi

ávarpa herrann háum rómi
huglaus andspænis dauðadómi
illskan er "tabu" innan í mér
þótt aldrei ég hafi þjónað þér

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu