Hring eftir hring
Lag og texti: Halli Reynis

Í margra augum er þetta hulinn heimur,
hetjur koma og fara.
Heyfa sig djarft í logandi ljósum,
- lifandi söluvara.

Viltu tolla í tískuheimi
og taktfastan stíga dans?
Vertu þá einsog allir aðrir,
í augum náungans.

Það eru brosandi ,,bisness´´ menn
að bjóða í þig árið um kring.
Hvort þú verðir í hvítu eða svörtu,
hve oft þú ferð í hring.

Það fer hring eftir hring
eftir hring eftir hring.
Hring eftir hring eftir hring eftir hring.

Aftur og aftur.