Hér
gerist aldrei neitt
Lag og texti: Halli Reynis
Það er
skrýtið að ganga hér um göturnar,
en ég get ekki af því gert að þær
heilla mig ekki.
Veðsettar sálir vina minna,
veslast hér upp bundnar við hlekki.
Hér breytist
aldrei neitt,
því það segir enginn neitt.
Hér eru bankarnir með völdin,
og litlir kóngar bak við tjöldin.
Hér gerist aldrei neitt.
Þarna er hún
æskuástin mín,
sem áður veitti hjarta mínu ilinn.
Hún gifti sig ung, gerðist margra barna móðir,
er nú myrkrinu umvafin, gjaldþrota og skilin.
Hér breytist
aldrei neitt.....
Hér stjórna
sömu hausarnir ár eftir ár,
í endalausu stríði við skuldadrögin.
Villuráfandi úr einni veislu í aðra.
Vanvirða þjóð sína og svívirða
lögin.
Hér breytist
aldrei neitt.....
Það er
gott að eiga pening, láta sér líða vel,
lifa hátt, veifa sínu valdi.
Peningahyggjan er gráðug og grimm,
grípur menn tökum í nútímaþrælahaldi.
Hér breytist
aldrei neitt.....
|