Halli Reynis


Go to content

Götumyndir

Textar > Textar

Götumyndir
Lag og texti: Halli Reynis

Förum upp á fjallið,
þar færðu að sjá.
Bara tvö uppá fjallið,
þú færð að sjá.
Marglitað landslagið,
svo langt sem augað nær.
Þar sem gróðurinn grær.

Skoðum saman marglitaðar myndir,
mannskepnunnar góðverkin og syndir.
Farir þú í fjölmennið að gá,
færðu að sjá.

Götubarn betlandi brauð.
Blómum prýddan milljónerans auð.
Vagnstjóra sem aldrei segir orð.
Umfjallanir fjölmiðla um morð.
Í þinghúsinu þingmannanna vandi.
Þreytta frú með puddle hund í bandi.
Skorsteina verksmiðju spúa reyk.
Sæt, lítil börn í saklausum leik.
Sporvagnanna renna á sinni slóð.
Sætan strák með gítar syngja ástkonunni óð.

Berðu augum borgina,
brátt þú færð að sjá.
Berðu augum borgina,
þar bíður þín að sjá.
Glæsihallir heldrimanna,
hungruð götubörn,
sem enga eiga vörn.

Skoðum saman marglitaðar myndir,
mannskepnunnar góðverkin og syndir.
Farir þú í fjölmennið að gá,
færðu að sjá.

Flæking í sundurtættri flík,
frakkaklædda menn útbreiða pólitík.
Eimreiðar háværar þjóta hjá,
háhýsin skítug og grá.
Krónuna í kauphöllinni falla,
Kínamann með kosti sína og galla.
Trúboða með biblíuboðskapinn.
Blíðlega stúlku selja líkama sinn.
Verkamenn á risavöxnum vélum.
Vonglaðan homma nýkominn úr felum.

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu