Gerðu
þetta, gerðu hitt
Lag og texti: Halli Reynis
Hann kom úr
amerískum skóla með blað uppá það
og fékk síðan starf sem hann leitaði að
og notar þar mikið mínus og plús,
fyrir það fær hann jeppa og eibýlishús.
Að tjá sig við
aðra maður við mann,
í faginu því hann ekkert kann.
Hann er forstjóri, ég er hans þræll
og hlýði ég honum þá er hann sæll.
Gerðu þetta, gerðu
hitt.
Gerðu sem ég segi því valdið er mitt.
Um ábyrgð mína þú veist ekki "baun",
ég er lærðari en þú með miklu hærri
laun.
Miklu hærri laun.
Að hafa það gott
honum reynist svo létt.
Hann tilheyrir allt öðrum hópi en ég, annarri
stétt.
Það segir hann sjálfur, það finnst honum
snjallt,
að njóta hlýjunnar inni þegar öðrum
er kalt.
En bak við merkjafötin
er hann þó nokkuð rýr.
Hann umturnar öllu sem að honum snýr.
Við óbreyttu hlæjum og syngju í kór,
þú værir flottari nagli ef værir þú
stór.
Gerðu þetta, gerðu
hitt.
Gerðu sem ég segi því valdið er mitt.
Um ábyrgð mína þú veist ekki "baun",
ég er lærðari en þú með miklu hærri
laun.
Miklu hærri laun.
Fjölskylda hans er falleg
á mynd,
þótt í húsbóndans augum megi rýna
í synd.
Ritarapían er rauð einsog glóð,
tiplar á tánum auðmjúk og góð.
Svo hringir hann heim segist
vinna í kvöld,
bak við lokuð gluggatjöld.
Segist þurfa að sitja yfir tölvunni, en
-ritarapían er komin á hnén.
Gerðu þetta, gerðu
hitt.
Gerðu sem ég segi því valdið er mitt.
Um ábyrgð mína þú veist ekki "baun",
ég er lærðari en þú með miklu hærri
laun.
Miklu hærri laun.
|