Söngur galeiðuþræla
Lag: Halli Reynis
Ljóð: Davíð Stefánsson frá Fargraskógi.
 

Við hefjum um niðdimmar nætur
hinn nístandi galeiðusöng
og þrælkum með fjötraða fætur
og fánann dreginn að stöng.
Það brakar í böndum og töglum,
og brjóst okkar foringinn slær,
uns blóðið brýst undan nöglum,
og dauðinn í djúpinu hlær.

Heyr kvein þeirra, er gæfunni glata
og gátu ekki flúið þann dóm
að verja það vald, sem þeir hata,
og visna í laganna klóm.
Heill þeim, sem helstafi yrkja
um harðstjórans ríki og völd.
Vei, vei þér, kóngur og kirkja
og gráa, guðlausa öld.

Með níðingum skulu þeir nefndir,
sem neituðu okkur um grið,
og blóð okkar boðar þeim hefndir
og bölvun í sjöunda lið.
Við bíðum á brimsorfnum fjölum
sem brennimerkt, lifandi hræ.
Við hljóðum af helvítis kvölum,
uns galeiðan sekkur í sæ.