Gæðakapphlaupskynslóðin
Lag og texti: Halli Reynis
Tímarnir
breytast og mennirnir með,
margir hafa undrast: Hvað hefur skeð?
Hátt rísa veggir, með viskunnar mátt,
vegir andans liggja í aðra átt.
Við
viljum ekki vakna.
Við viljum ekki sjá.
Við viljum ekki hlusta,
sannleikann á.
Við
áttum kjarkinn, þóttumst hugaðir en höfðum
enga vörn,
hreyfðum okkur í takt við tímann, við vorum
nútímabörn.
Þú hvarfst inní tómið, tapaðir slóð,
týndur veruleikanum, með kulnaða glóð.
Þú
vilt ekki vakna.
Þú vilt ekki sjá.
Þú vilt ekki hlusta,
sannleikann á.
Flestir
fóru að basla, byggja sér hús,
berjast við peninga, “á skuldugum blús”.
Ég fór í þá átt, elti öll
hin.
Öll við erum Gæðakapphlaupskynslóðin.
Við
viljum ekki vakna.
Við viljum ekki sjá.
Við viljum ekki hlusta,
sannleikann á.
|