Fyrir
fullt og allt
Lag: Halli Reynis/Örn Hjálmarsson Texti:
Halli Reynis
Draumar
mínir liggja, þar sem þeim ber,
í fangi gamallar konu sem geymir mynd af þér.
Þar er líka fjaran og aldan sem bar,
upp í sandinn augnablikið, sem geymir okkar svar.
Þessi
staður var hannaður fyrir þá,
sem hafa engan punkt til að miða á.
Þú fórst út af sporinu og þér
var eilíflega kalt
og nú ertu farinn fyrir fullt og allt.
Hingað
hef ég komið hvern einasta dag.
Hvíslað út í tómið okkar lag.
Ég finn hvernig tíminn mjakar öllu fjær
en ég skal standa við loforðin sem ég lofaði
í gær.
Þessi
staður var hannaður fyrir þá ......
|