Halli Reynis


Go to content

Frystihúsabragur

Textar > Textar

Frystihúsabragur
Lag og texti: Hörður Torfa

Þreyttur á að þræla,
þrusar í klefahurð.
Stæltur og með stæla,
styrkir yfirburð.
Fatahrúga flækist,
fyrir á snögunum.
Töff væri ef að tækist,
að týna dögunum.

Mitt er þitt
og þitt er mitt.
En sitt í hvoru lagi.
Skitt að kvitt
við hittumst mitt,
í pitt´af þessu tagi.

Hfartað er að hlusta
hlera egin sál.
Draumanna að dusta,
dylja leyndarmál.
Djöfuls brennsludauninn.
Dauðann fisk og slor.
Lágu verkalaunin,
lama hug og þor.

Hingað vantar hendur,
hrópar verkstjórinn.
Gunni, Jón og Gvendur
og Gulla hingað inn.
Verkin þarf að vinna,
veitið okkur lið.
Fisk er kannski að finna.
Fengsæl aflamið.

Þreyttur á að þræla,
þrusar í klefahurð.
Stæltur og með stæla,
styrkir yfirburð.
Djöfuls brennsludauninn.
Dauðann fisk og slor.
Lágu verkalaunin,
lækkuðu í vor.

Heim | Halli Reynis | Útgáfan | Textar | Myndir | Gítarkennsla | Hlusta | Site Map

eXTReMe Tracker

Back to content | Back to main menu