Textar > Textar
Friðlausi fuglinn
Lag: Halli Reynis
Ljóð: Davíð Stefánsson
Ég er í ætt við alla,
sem erfa hinn dökka lit.
Ég er friðlausi fuglinn,
sem flýgur með villtum þyt.
Ég er friðlausi fuglinn,
sem fæddist með villtri þrá,
sem elskar heiðingjans himin
og hamrafjöllin blá.
Ég er friðlausi fuglinn,
sem frelsinu mikla ann,
sem hatrið gerði að hetju
og heimskan söng í bann.
Ég er friðlausi fuglinn,
sem forðast að leita í skjól,
þó kaldan blási um brjóstið,
og bregðist vor og sól.
Ég er friðlausi fuglinn,
sem flýgur í norðurátt,
er syngjandi svanir líða
suður um heiðið blátt.
Ég er friðlausi fuglinn,
sem finnur sinn villta þrótt.
Í hjartanu hálfu er dagur,
en hálfu kolsvört nótt.