Textar > Textar
Þetta lag kom
út á safndiski
sem Japis gaf
út 1994 og
heitir
"Íslenskt já takk"
Flaskan
Lag og texti: Halli Reynis
Svo heillandi segja þeir sem sjá ´ana
enda selur hún sig dýrt
og eftir að hafa skellt sér á ´ana
hugsarðu ekki skýrt.
Hún bíður þér í undraheima
þá kvöldið er fullkomnað
og fær þig til að gleyma
stund og stað.
Hún er frekja og vill fá að ráða.
Hún er undirgefin og blíð.
Hún ýmist stillir til friðar,
eða framkallar blóðug stríð.
Hún heillar þó flesta menn.
Hún er vinur og óvinur í senn.
Sumir haf´ana saman,
aðrir einir í ró.
Sem einnar nætur gaman,
er hún meira en nóg.
Það er einhver lúmskur kraftur
sem yfir henni býr.
Því menn fara aftur og aftur,
þegar hugsun er aftur skýr.
Hún ýmist gleður hjartað
eða brýtur niður í smátt.
Hún gerir hvað hún getur
til að nota sinn mikla mátt.
Hún heillar þó flesta menn.
Hún er vinur og óvinur í senn.