Flaskan
Lag og texti: Halli Reynis
Svo heillandi
segja þeir sem sjá ´ana
enda selur hún sig dýrt
og eftir að hafa skellt sér á ´ana
hugsarðu ekki skýrt.
Hún bíður
þér í undraheima
þá kvöldið er fullkomnað
og fær þig til að gleyma
stund og stað.
Hún er frekja og vill
fá að ráða.
Hún er undirgefin og blíð.
Hún ýmist stillir til friðar,
eða framkallar blóðug stríð.
Hún heillar þó flesta menn.
Hún er vinur og óvinur í senn.
Sumir haf´ana saman,
aðrir einir í ró.
Sem einnar nætur gaman,
er hún meira en nóg.
Það er einhver lúmskur
kraftur
sem yfir henni býr.
Því menn fara aftur og aftur,
þegar hugsun er aftur skýr.
Hún ýmist gleður
hjartað
eða brýtur niður í smátt.
Hún gerir hvað hún getur
til að nota sinn mikla mátt.
Hún heillar þó flesta menn.
Hún er vinur og óvinur í senn.
|