Lag
og texti: Halli Reynis
hér lék örlagabarnið
við öldurótið
fangaði drauma
við fjörugrjótið
með frelsið og friðinn
múkkann og miðin
sýndi þá tryggð
er tilheyrir byggð
hér var trúað á vonir
hér eru tímarnir breyttir
hér rauk úr húsum
hér voru hjallarnir skreyttir
menn sáðu í svörðinn
um allan fjörðinn
sýndu þá tryggð
er tilheyrir byggð
liðið úti á landi
byggði sér borgir á sandi
sagði heimskur maður og vitnaði í tölur og drög
hann talað'um vonir og arfinn
vísuna og skarfinn
brosti út í bæði og þóttist mælskur
mjög
hér eru minnismerkin
ryðguð og rotin
húsin hrunin
bryggjan brotin
jafnvel fuglarnir flúnir
aðeins ristar rúnir
er vitna um tryggð
er tilheyrir byggð