Útgáfan
1. Hótel í Hamborg
2. Sól
3. Sveitin mín heitir Breiðholt
4. Draumalandið mitt (Færeyjar)
5. Fyrir fullt og allt*
6. Segðu mér satt
7. Hér gerist aldrei neitt
8. Gæðakapphlaupskynslóðin
9. Ég er að koma
10.Við mínar sálarstrendur
11. Litla systir*
Lög og textar: Halli Reynis
nema 5 og 11 Lög: Halli Reynis/Örn Hjámarsson
Textar: Halli Reynis
Halli Reynis: Gítar, söngur, raddir, munnharpa, mandólín.
Jón Skuggi: Kontrabassi, raddir.
Erik Qvick: Trommur, ásláttur.
Örn Hjálmars: Gítar, raddir.
Matthías Stefánsson: Fiðla.
Íris Guðbjartsdóttir: Rödd í "Draumalandið mitt (Færeyjar)"
Brynjar Björnsson: Rödd í "Við mínar sálarstrendur"
Tekið upp "live" í Stúdíó Ryk í Ágúst 2006..
Upptaka, hljóðblöndun: Albert Ásvaldsson.
Lokafrágangur: Valgeir Sigurðsson
Útsetningar: Halli og bandið.
Ljósmyndir: Einar Óli Einarsson
Hönnun: Jóna Karen Wedholm.
Útgefandi. Músik ehf.
Dreifing: Músik ehf.
Hótel í Hamborg
Lag og texti: Halli Reynis
Dagurinn fór seint á fætur.
Við fundum fyrir nóttinni í nótt.
Heimsborgin fyrir utan er svo hávær,
en í húsinu er fáránlega hljótt
og hér liggur þú næstum því nakin
og nýtur þess að vera til.
Við eigum nóg af öllu
og örlítið til.
Að vakna upp á hóteli í Hamborg,
hefja sig til flugs með þér,
leyfa sér að líða inn í tómið,
sem er lokað þeim sem fyrir utan er.
Ég vil vera í þessari vímu
og vakna þegar tíminn stendur í stað.
Við eigum nóg af öllu
og hvort annað.
Hér sameinum við syndir okkar beggja,
syngjum þeim sem hafa enga trú.
Hamingjan á sínar óteljandi myndir
en í mínum augum þá er sannleikurinn þú.
Og ég finn það í skjóli okkar skugga
er skríða yfir okkar djúpa hyl.
Við eigum nóg af öllu
og örlítið til.
Sól
Lag og texti: Halli Reynis
Ástin mín er eins og huldukona sem heimurinn ekki sér.
Hjá henni á ég öruggt skjól.
Hún kemur með ljósið sem er á meðan er.
Einmitt þess vegna kalla ég hana Sól.
Sól, kemur á kvöldin
og kveikir ljós hjá mér.
Þegar hún fer, falla aftur tjöldin,
sem fela hana hverjum sem er.
Sól geymir í augum sínum eldinn sem er,
eins og von þegar dagurinn er nýr.
Hún bað mig um að fara í ferðalag með sér,
yfir fjöllin þar sem hjarta hennar býr.
Sveitin mín heitir Breiðholt
Lag og texti: Halli Reynis
Sveitin mín heitir Breiðholt, þar hef ég búið alla tíð.
Hún byggðist upp af hugsjón löngu eftir stríð.
Móarnir voru grafnir upp, malbikað yfir allt
og milljón rúmmetra steypublokkirnar byggðar svo engum yrði kalt.
Ég man göturnar á milli húsanna sem geyma sporin mín.
Gráar og þreyttar húsmæður að öskra á börnin sín.
Lífernið í blokkinni sem var oftast tekið með stæl.
Ljótar og fallegar uppákomur, fuglasöng og sírenuvæl.
Þú kemur úr sveit sem er allt öðruvísi en mín.
Það er útsýn út á fjörð og tignarleg fjallasýn.
En efnishyggjan blæddi inn í þinn bláa fjallasal,
með blóðsugum að sunnan sem vita ekki aura sinna tal.
Hóllinn þinn er farinn sem þú hafðir mætur á.
Heimreiðin er læst og lítið annað þar að sjá,
en þar er Breiðholtsbúi á jeppa þar sem óðalssetur rís,
þar fær hann að vera kóngur og hann kallar það Paradís.
Draumalandið mitt
Lag og texti: Halli Reynis
Ferðin tók aldrei enda.
Í upphafi vissi ég það.
Mér var ætlað að koma aftur
og búa á þessum stað.
Hér eru þeir sem varðveita glóðina,
dansa og syngja fyrir þjóðina.
Skál fyrir frelsinu,
moldinni sem grær,
lífinu sem lifnaði í gær.
Draumalandið mitt.
Draumalandið mitt.
Draumalandið, þar sem hjartað slær.
Fólkið mitt skilur hvað gerðist.
Sagan mun lifa hjá þeim.
Margir fóru, ætluðu að stoppa stutt,
en fundu ekki leiðina heim.
Þokan hylur freiðandi dröfnina.
Fjögurra manna far kveður höfnina.
Skál fyrir Dönum,
moldinni sem grær,
lífinu sem fæddist í gær.
Draumalandið mitt.
Draumalandið mitt.
Draumalandið, þar sem hjartað slær.
Fyrir fullt og allt
Lag: Halli Reynis/Örn Hjálmarsson Texti: Halli Reynis
Draumar mínir liggja, þar sem þeim ber,
í fangi gamallar konu sem geymir mynd af þér.
Þar er líka fjaran og aldan sem bar,
upp í sandinn augnablikið, sem geymir okkar svar.
Þessi staður var hannaður fyrir þá,
sem hafa engan punkt til að miða á.
Þú fórst út af sporinu og þér var eilíflega kalt
og nú ertu farinn fyrir fullt og allt.
Hingað hef ég komið hvern einasta dag.
Hvíslað út í tómið okkar lag.
Ég finn hvernig tíminn mjakar öllu fjær
en ég skal standa við loforðin sem ég lofaði í gær.
Þessi staður var hannaður fyrir þá ......
Hér gerist aldrei neitt
Lag og texti: Halli Reynis
Það er skrýtið að ganga hér um göturnar,
en ég get ekki af því gert að þær heilla mig ekki.
Veðsettar sálir vina minna,
veslast hér upp bundnar við hlekki.
Hér breytist aldrei neitt,
því það segir enginn neitt.
Hér eru bankarnir með völdin,
og litlir kóngar bak við tjöldin.
Hér gerist aldrei neitt.
Þarna er hún æskuástin mín,
sem áður veitti hjarta mínu ilinn.
Hún gifti sig ung, gerðist margra barna móðir,
er nú myrkrinu umvafin, gjaldþrota og skilin.
Hér breytist aldrei neitt.....
Hér stjórna sömu hausarnir ár eftir ár,
í endalausu stríði við skuldadrögin.
Villuráfandi úr einni veislu í aðra.
Vanvirða þjóð sína og svívirða lögin.
Hér breytist aldrei neitt.....
Það er gott að eiga pening, láta sér líða vel,
lifa hátt, veifa sínu valdi.
Peningahyggjan er gráðug og grimm,
grípur menn tökum í nútímaþrælahaldi.
Hér breytist aldrei neitt.....
Gæðakapphlaupskynslóðin
Lag og texti: Halli Reynis
Tímarnir breytast og mennirnir með,
margir hafa undrast: Hvað hefur skeð?
Hátt rísa veggir, með viskunnar mátt,
vegir andans liggja í aðra átt.
Við viljum ekki vakna.
Við viljum ekki sjá.
Við viljum ekki hlusta,
sannleikann á.
Við áttum kjarkinn, þóttumst hugaðir en höfðum enga vörn,
hreyfðum okkur í takt við tímann, við vorum nútímabörn.
Þú hvarfst inní tómið, tapaðir slóð,
týndur veruleikanum, með kulnaða glóð.
Þú vilt ekki vakna.
Þú vilt ekki sjá.
Þú vilt ekki hlusta,
sannleikann á.
Flestir fóru að basla, byggja sér hús,
berjast við peninga, “á skuldugum blús”.
Ég fór í þá átt, elti öll hin.
Öll við erum Gæðakapphlaupskynslóðin.
Við viljum ekki vakna.
Við viljum ekki sjá.
Við viljum ekki hlusta,
sannleikann á.
Ég er að koma
Lag og texti: Halli Reynis
Bleikar varir, bleikur koss.
Blindar augun, hjartans hnoss.
Dómur fellur með hvítan kross.
Ég er að koma - hvíslar rödd.
Ég er að koma - hvíslar rödd.
Ég er að koma - hvíslar rödd,
hvíslar rödd.
Nautnin ærist, nær í sitt,
nemur staðar við sýktan pitt.
Blóðið mitt er blóðið þitt.
Ég er að koma - hvíslar rödd….
Hugur leitar, glepur gil,
gegnum þokusvartan byl.
Dýfir sér í dauðans hyl.
Ég er að koma - hvíslar rödd….
Finna varir, finna hönd,
færast yfir ókunn lönd.
Fá sér hvíld á draumaströnd.
Við mínar sálarstrendur
Lag og texti: Halli Reynis
Hún er fegurðin og feigðin í senn.
Hún fer í gegnum mínar hendur.
Brotsjór sem brýtur menn.
Brimrótið við mínar sálarstrendur.
Af hennar vörum fæ ég kaldan koss,
er kvelur mig og hefur yfir mér völdin.
Í krafti sínum smíðaði hún mér kross
ég krýp við hann og signi mig á kvöldin.
Við mínar sálarstrendur
Lag og texti: Halli Reynis
Hún er fegurðin og feigðin í senn.
Hún fer í gegnum mínar hendur.
Brotsjór sem brýtur menn.
Brimrótið við mínar sálarstrendur.
Af hennar vörum fæ ég kaldan koss,
er kvelur mig og hefur yfir mér völdin.
Í krafti sínum smíðaði hún mér kross
ég krýp við hann og signi mig á kvöldin.
Við mínar sálarstrendur
Lag og texti: Halli Reynis
Hún er fegurðin og feigðin í senn.
Hún fer í gegnum mínar hendur.
Brotsjór sem brýtur menn.
Brimrótið við mínar sálarstrendur.
Af hennar vörum fæ ég kaldan koss,
er kvelur mig og hefur yfir mér völdin.
Í krafti sínum smíðaði hún mér kross
ég krýp við hann og signi mig á kvöldin.