Falleg augu þín
Lag og texti: Halli Reynis

Ég gekk útí myrkrið og tunglið til mín brosti,
ég taldi nokkrar stjörnur, klæddur næturinnar frosti.
Ég gekk framhjá húsi þínu, horfði að það um stund,
hjartað barðist í brjósti mínu, þráði á þinn fund.

Ég hafði ekki krjark til þess að knýja að dyrum,
kliður þess liðna vaknaði sem engin lengur spyr um.
Og víst var ég forvitinn að fá að hitta þig í nótt,
finna þig í faðmi þínum svo ég gæti sofið rótt.

Ég hef verið mikið einn, allan þennan tíma,
bara ef ég gæti talað við þig, þó ekki nema í síma.
Því ég þrái svo að heyra hvaða hug þú berð til mín,
hugur minn geymir mynd af þér og falleg augum þín.

Þú sagðir fyrir löngu síðan, lítum ei til baka,
leifum minningunni að lifa, það er engan að saka.
Ást er aðeins tímans óskrifaða blað,
hvað á það verður skrifað, það er nú það.

Ég hef veri einn á kvöldin og ég uni mér best í næði,
eflaust er best að gleyma þessu, fyrir okkur bæði.
Ég þrái svo að heyra hvaða hug þú berð til mín,
hugur minn geymir mynd af þér og falleg augum þín.