Textar > Textar
Englagrátur
Lag og texti: Halli Reynis
Hún bíður mín handan við hornið,
hamingjan, á eftir mér.
Með hjartafylli af friði,
friði á eftir mér.
Það grétu allir englar á himnum í nótt,
hamingjutárum
og ég upplifði það sem ég ætíð hef sótt,
til þín á liðnum árum.
Það er stúlka sem starir á mig,
með stillt augnaráð.
Sem hittir mig í hjartað.
Hungrar í sína bráð.
Það grétu allir englar á himnum í nótt,
hamingjutárum
og ég upplifði það sem ég ætíð hef sótt,
til þín á liðnum árum.