Engillinn í snjónum
Lag og texti: Halli Reynis

Mér finnst gaman að liggja í snjónum með þér,
horfa upp í himininn, þar sem tunglið er.
Tala um draumana, halda í þá fast,
sjá stjörnurnar smátt og smátt margfaldast.

Engillinn í snjónum hefur vængi.
Englar eru í alvörunni til.
Þeir vaka á meðan ég sef.
Þeir koma þegar ég vil.

Gerðu engil í snjónum og skemmtu þér.
Leyfðu barninu innra með þér að leika sér.
Veldu þér stjörnu og stjarnan verður þín
og engillinn flýgur með þér um heimkynni sín.

Engillinn í snjónum hefur vængi.
Englar eru í alvörunni til.
Þeir vaka á meðan ég sef.
Þeir koma þegar ég vil.