Draumalandið
mitt
Lag og texti: Halli Reynis
Ferðin tók
aldrei enda.
Í upphafi vissi ég það.
Mér var ætlað að koma aftur
og búa á þessum stað.
Hér eru þeir
sem varðveita glóðina,
dansa og syngja fyrir þjóðina.
Skál fyrir frelsinu,
moldinni sem grær,
lífinu sem lifnaði í gær.
Draumalandið
mitt.
Draumalandið mitt.
Draumalandið, þar sem hjartað slær.
Fólkið
mitt skilur hvað gerðist.
Sagan mun lifa hjá þeim.
Margir fóru, ætluðu að stoppa stutt,
en fundu ekki leiðina heim.
Þokan
hylur freiðandi dröfnina.
Fjögurra manna far kveður höfnina.
Skál fyrir Dönum,
moldinni sem grær,
lífinu sem fæddist í gær.
Draumalandið
mitt.
Draumalandið mitt.
Draumalandið, þar sem hjartað slær.
|