Café
Køben
Lag og texti: Halli Reynis
Kaffihúsið
kúrir svo hljótt.
Kvöldið færir gestunum frið.
Er koma inn og kasta af sér klæðum
og kafa oní mannlífið.
Hér
eru heimsmálin af hugviti rædd.
Hafin upp af draumleitandi sálum.
Er losa af sér ósýnileg höftin,
á allra þjóða tungumálum.
Það
snjóar úti og það er notalegt að ylja sér.
Hefur þú segðu mér,
komið inn á Café Køben?
Hingað
kemur skáldið og skrifar ljóð
og skáldahugurinn verður eins og djúpur hylur.
Að lokum fer með lítinn óð,
ljóð sem enginn maður skilur.
Hingað
koma fínar frúr og brosa.
Á flótta undan þotuliðsveröldinni.
Heitum ástum drekkja í heimskum vínum
og halda uppá falin kynni.
Það
snjóar úti og það er notalegt að ylja sér.
Hefur þú segðu mér,
komið inn á Café Køben?
|