Brennur
guðanna
Lag og texti: Halli Reynis
Fyrir guðinn
sem við trúuð á
við tilbiðjum og hneigjum
Einn er alveg einstakur
uppalinn í Eyjum
Sé lífið
fúllt og innantómt
sé farið allt í hönk
Þá losar hann þig við ósómann
þungarokk og pönk
Þú mætir
með plötur þínar
ég mæti með mínar
Fyrir guðshönd mætir presturinn
með eldspýturnar sínar
Ef öll við hendum
á brennuna
mun brennan vera stór
svo dönsum við fyrir guðina
og syngjum öll I kór
Leyfum diskunum að brenna
það óþarfa plott
og afmáum í leiðinni
syndarans glott
og ómenningu alla
sem yfir okkur flæðir
í laumi hlær presturinn
og græðir og græðir.
Ef guði þú
hleypir inn til þín
mun sólin eilíft skína.
Þeir predika þá yfir þér
fyrir peninganna þína.
Farir þú á
samkomur
þú hreinsast smátt og smátt
og líf þitt verður allt í lit
þó aldrei bleikt og blátt
Sértu kannski karlmaður
fyrir karlmenn aðra gefinn
munt þú verða bænheyður
og synd þín fyrirgefin
og áður en þú
veist
ertu einn af guðs sonum
og draumar þínir drengur
verða drekktir í berum konum
Látum diskana
brenna
það óþarfa plott
og afmáum í leiðinni
syndarans glott
og ómenningu alla
sem yfir oss flæðir
í laumi hlær presturinn
og græðir og græðir.
|